Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson sæmdi 16 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þann 17. júní sl.
Það er ánægjulegt að segja frá því að Þórey S. Kemp Guðmundsdóttir íþróttakennari, var sæmd riddarakrossi fyrir framlag til íþróttaiðkunar kvenna og heilsueflingar aldraðra. Þórey hefur verið félagskona í Félagi háskólakvenna um árabil og hefur hlotið heiðursviðurkenningu félagsins fyrir brautryðjendastarf og mikilsvert framlag til Félags háskólakvenna.
Innilega til hamingju Þórey