Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Félags háskólakvenna á Hótel Holti þann 23. maí sl. Guðmunda Smáradóttir var kjörin formaður stjórnar og Björg Jónsdóttir varaformaður stjórnar. Aðrar í stjórn eru Ásgerður Halldórsdóttir, Vaka Óttarsdóttir og Vilborg Einarsdóttir. Varamenn í stjórn eru Ruth Elfarsdóttir og Sigríður Hrund Pétursdóttir.