Stjórn Félags háskólakvenna boðar til aðalfundar félagsins, þriðjudaginn 23. maí 2023 kl. 17.00 – 18.00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Holti.
Óskað er eftir framboðum til stjórnar og skulu þau berast eigi síðar en 12. maí á netfangið felaghaskolakvenna@gmail.com þær sem bjóða sig fram til stjórnar skulu vera félagskonur, hafa greitt félagsgjöld og skulu láta ferilskrá fylgja með framboði.
Dagskrá
Kosning fundastjóra og ritara
Greint frá störfum félagsins á liðnu starfsári
Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins
Kosning stjórnar
Kosning skoðunarmanns reikninga
Ákvörðun árgjalds
Önnur mál
Að loknum aðalfundarstörfum verða veittir tveir rannsóknastyrkir til kvenna í framhaldsnámi.