Við sendum heiðursfélaga FHK, Vigdísi Finnbogadóttur, okkar allra bestu óskir um gleðilegan 90 ára afmælisdag 15. apríl 2020. Um leið og við þökkum henni af heilum hug fyrir allt hennar framlag þá munum við leggja okkur fram við að halda merkjum hennar á lofti. Frú Vigdís Finnbogadóttir er fyrirmynd allra fyrirmynda. #takkVigdís