Stjórn Félags háskólakvenna efndi til stefnumótunarfundar þar sem góðar umræður voru um starfsemi félagsins. Fjölmargar hugmyndir komu fram á fundinum og þakkar stjórnin þeim sem mættu á fundinn og lögðu sitt af mörkum. Fundurinn var haldinn í húsnæði Íslandsbanka í Smáralind 16. september.