Þann 20. febrúar nk kl: 16 mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tilkynna hver hefur verið valin háskólakona ársins 2022.
Athöfnin fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu skólans.
Við hvetjum félagskonur til þess að mæta og endilega bjóðið með ykkur vinkonu(m). Í boði verða léttar veitingar.
Vinsamlegast skráið þátttöku til felaghaskolakvenna@gmail.com